Skíðasvæðið Skarðsdal Siglufirði

Skíðasvæði í Fjallabyggð

Fréttir

Sunnudagurinn 19.Maí lokað verður vegna aðstæðna


lokað verður sunnudaginn 19.maí vegna aðstæðna og þykir okkur það miður, enn við viljum þakka fyrir frábæran vetur og sjáumst eldhress næsta vetur ;)


Starfsfólk skíðasvæðisins

Laugardagurinn 18.maí

Opið er hjá okkur í dag frá 11:00-15:00

og er um 10 stiga hiti og glampandi sól flott verður um að gera að mæta og fá sér smá lit ;)

Miðvikudaginn 8. maí Skarðsdalurinn verður opinn um hvítasunnuna.

Þetta er þegar var og hét að menn kunnu að ganga á skíðum.
Takið frá hvítasunnuna því þá verður opið í Skarðsdalnum. Snjórinn telst í metrum og brekkurnar eru flottar. Gerum þetta að hvítasunnufjöri eins og páskafjörið var. Þá brostu allir hringinn yfir fegurð dalsins.

Strákarnir munu taka vel á móti ykkur. Björn, Sigurjón, Birgir og Kári mun sjá um að brekkurnar verði klárar.





Sunnudaginn 5. maí hefur svæðinu verið lokað þetta vorið.

Nú flöggum við fyrir sumrinu.
Þessi helgi var loka tilraun til að hafa opið nú í maí en nú höfum við lokað svæðinu þennan veturinn.

Við starfsmenn skíðasvæðisins viljum þakka ykkur skíðagestir kærlega fyrir veturinn, hann var mjög góður. 98 daga opnun og gestir 16500.

Sjáumst hress næsta vetur.

Starfsmenn
 



Föstudaginn 3. maí lokað

Þetta var svona í allan vetur, allir brosandi.
Við munum taka stöðuna í fyrramálið kl 10:00 hvort opnað verður á morgun.

Gestir inn á svæðið í vetur voru 16500 manns sem er met aðsókn og opnunardagar voru 98. Innlit inn á heimasíðu skard.fjallabyggð.is hvern einasta dag frá 1. des til 1. maí var 205 og innhringingar í síma 878-3399 upplýsingasíman voru 114 á dag á þessum sama tíma.
Allar tölur eru upp á við.

Starfsmenn





Miðvikudaginn 1. maí opið kl 11-15


Flottur dagur að baki en rúmlega 200 manns eru búnir að koma í fjallið í dag.

Tökum stöðunna á föstudaginn hvort við getum opnað á laugardaginn 4. maí.

Það stefnir í að þessi dagur verði sá síðasti sem opið verður í Skarðsdalnum svo nú er um að gera að mæta í dag.

Í dag verður opið frá kl 11-15. Veðrið kl 08:40 ANA 2-5m/sek, frost 5 stig og léttskýjað. Færið er troðinn nýr snjór og var troðið í gær og er kominn smá nýr snjór ofaná.

Velkomin í Skarðsdalinn
Starfsmenn


Dagatal

« Maí 2013 »
SMÞMFFL
 1234
567891011
12131415161718
19202122232425
262728293031 
Veðurstöðin Skarðsdal

Mynd augnabliksins

p1020251.jpg
Myndband
Réttinaverkstæði Jóa
Veðurstofan
Olís
Bás ehf
Skeljungur hf
Skíðafélag Siglufjarðar Skíðaborg
Skíðafélag Ólafsfjarðar
Brimnes Hótel

Framsetning efnis

moya - Útgáfa 1.12 2007 - Stefna ehf

Innskráning